Airwaves #10

Skatebård (NO)
Á Pravda á föstudaginn, kl. 01:20



Skatebård er norskur elektróbolti, sem kallar ekki allt ömmu sína, enda væri það mjög ruglingslegt. Þetta er elektró af þeirri gerðinni að ömmur rísa úr gröfum sínum, og breikdansa sveittar í svona þrjúkorter. Klukkutíma jafnvel, ef stemmningin verður góð í húsinu.

» Skatebård - 'Data Italia'

» Skatebård á icelandairwaves.com

Ummæli

Vinsælar færslur