CIA á bakvið elektrósmell um BDSM dómínu frá 1982



Við tónlistargrúsk í morgun sem liður í undirbúningi fyrir settið mitt á Háskar, listahátíð Hatara í Iðnó á páskum rakst ég á lagið Dominatrix Sleeps Tonight með hljómsveitinni Dominatrix.

Smá eftirgrennslan um þetta sérstaka lag leiddi mig að þessarri áhugaverðu grein á Medium um tilurð lagsins og hlut höfund þess, sem var garðyrkjumaður stjarnanna í NYC, í máli BDSM dómínu (eða dominatrix á ensku) í agalega krassandi njósnaflækju.

Það varð svo ástæða til að endurvekja þetta fína tónlistarblogg eftir fimm ára dvala. Velkomin aftur.

Ummæli

Vinsælar færslur