The Alan Wilkis Project



Alan Wilkis var að senda okkur efni af nýju plötunni sinni, 'Babies Dream Big'. Hann kemur frá Brooklyn og segist flytja tónlist sem sé erfitt að negla niður, en er þó rótföst í 70s og 80s soul, elektró og -(töfraorðin mín)- soft rock. Ég er sammála hans eigin mati. Pínu einsog eldri, ekki eins graður bróðir Johnny Sexual.

Skemmtileg og tilfinningaþrungin tónlist sem sameinar DIY trommuheila og smekklegar lagasmíðar. Tár á kinn, snúningur í mjöðm og einstaka hetjusóló. Meðmælt!

Alan Wilkis - 'I Wanna Know' mp3
Alan Wilkis - 'Burnin'' mp3

Ummæli

Laufey sagði…
úúúú fílaetta,sérstaklega "burnin" ouuwww!

Vinsælar færslur